Úff, þar fór í verra

Sú staðreynd að ég var klukkuð af henni Katrínu Snæhólm sem er klikkuð veldur því að ég þarf að blogga þrátt fyrir að hafa ekki verið í stuði til þess í soldið langan tíma. 

En hér eru átta hlutir sem þið vissuð ekki um mig:

1. 

2.  

3.

....æi, ég get þetta ekki. Er búin að byrja nokkrum sinnum en hætti svo við allt. Eins og heilinn í mér sé í sumarfríi þrátt fyrir að líkaminn sé í vinnu. Samt vinn ég ekki við að moka skurði eða neitt svoleiðis. 

PS! Katrín Snæhólm er ekkert mikið klikkuð en það passaði bara svo vel saman að ég væri klukkuð en hún klikkuð. Kapíss? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

5. viðbjóðslega feimin og hrædd við að gefa upp þína karakterbresti en þú ert óggisla sæt.

6. Þú ert ekki ólagleg en rosalega lokuð

7. Þú ert í fríðari kantinum en með dáldið stórt nef.

8. Þú átt 14 börn með 16 börnum og ert lagleg kona (flott mynd af þér í "tidningen" um daginn)

Það er asnalegt að klukka, heyrirðu það Betuskömm

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.7.2007 kl. 14:45

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

lesist 16 mönnum, er svo feimin og lítil í mér eitthvað.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.7.2007 kl. 14:46

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ok...þú þarft hjálp. Það er augljóst. Best að ég taki að mér að útskýra leyndarmál þín í smáatriðum enda þarf maður að vera klikk til að þekkja þig svona vel. Þú svona sæt.

1. Græna putta og sæt þegar hún grenjað þegar hún var 5.

2. Bleikur bíll og bleikt gloss....hennar uppáhalds.

3. elskar að blogga. Er alltaf að blogga en er svo feimin að hún felur allar færslurnar.

Og svo framvegis. Eða þetta er bara bull og ég kilkk að halda að ég viti eitthvað um þessa lekkeru dulardömu.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 12.7.2007 kl. 16:57

4 Smámynd: Ibba Sig.

Takk fyrir hjálpina stelpur! Þið eruð "right on the money".

En á ég að trúa því Jenný að þú hafir bara séð eina mynd í síðustu viku? Vonandi þá betri, ha? 

Ibba Sig., 12.7.2007 kl. 20:52

5 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Ég skal líka hjálpa til. Átta hlutir um Ibbu:

1. Hún er svaka pæja.

2. Hún er gríðarlega klár.

3. Hún er afar flinkur penni.

4. Hún ætti að vera í sjónvarpinu.

5. Hún á 100 börn (give or take a few).

6. Heimili hennar er dýragarður.

7. Hún getur lyft meira en ég í fótapressu.

8. Henni finnst ekki gaman á tónleikum. (þetta síðasta hlýtur að flokkast undir geðveilu!)

Svala Jónsdóttir, 12.7.2007 kl. 21:54

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hahahaha Betan ég ER perri, Muhahahahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.7.2007 kl. 09:33

7 identicon

Hér eru 8 hlutir sem ég veit ekki um þig:

1: aldur

2: skónúmer

3: trefilsnúmer

4: upprunalegi háralitur

5: skakkar eða beinar tær

6: kaffi eða te

7: formúlan eða bacheolor

8: Há dú jú læk æsland? 

Sonja (IP-tala skráð) 15.7.2007 kl. 18:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband