11.10.2007 | 20:06
Halda þeir að ég sé fífl?
Ein spurning eftir að hafa horft á fréttir og Kastljós. Á maður að trúa því að Bingi og gamli góði Villi hafi ákveðið að sameina GGE og Rei og aldrei rætt um framtíð þess, ekki einu sinni næstu dagana eftir stofnun? Að viku eftir sameiningu fatti þeir svo bara að annar vildi eiga en hinn selja?
Athugasemdir
Jenný Anna Baldursdóttir, 11.10.2007 kl. 20:14
Já, þau eru algerlega sannfærð um að við séum slefandi fífl, þau hlæja að okkur á bak við tjöldin og framkoman sýnir að þau fyrirlíta okkur og nota eins og tuskudruslur.
Ingi Geir Hreinsson, 12.10.2007 kl. 17:58
hún lifir, hún lifir! Gaman að kíkja á þig aftur vinkona.
Heiða Þórðar, 15.10.2007 kl. 00:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.